Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

hvor sinn fn
 
framburður
 um tvo eða tvennt
 1
 
 (um tvo eða tvennt) dreifimerking (vísar til liðar, oft(ast) frumlags, sem er í fleirtölu eða samsettur) - tvíyrt fornafn; báðir hlutar beygjast (sbr. "hvor" og "sinn") en sambeygjast ekki; "hvor" lagar sig að orðinu sem það vísar til en "sinn" að orðinu sem það stendur með (og stjórnast af sögn eða forsetningu)
 dæmi: við Kata fórum hvort í sína áttina eftir fundinn
 dæmi: þær sátu hvor í sínu horni og þögðu
 dæmi: þau gáfu tvíburunum hvorum sína tölvu í fermingargjöf
 dæmi: nýliðarnir tveir skoruðu sitt markið hvor
 2
 
 (um tvo eða tvennt) eignarmerking: sams konar eign tilheyrir hvorum fyrir sig - tvíyrt fornafn; báðir hlutar beygjast (sbr. "hvor" og "sinn") en sambeygjast ekki; "hvor" lagar sig að orðinu sem það vísar til en "sinn" að orðinu sem það stendur með (og stjórnast af sögn eða forsetningu)
 dæmi: þau komu hvort á sínum bíl
 dæmi: strákarnir voru hvor með sína greiðu í rassvasanum
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík