Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

stór lo info
 
framburður
 beyging
 1
 
 mikill á hæð eða breidd
 dæmi: húsbóndinn var stór maður og þrekvaxinn
 dæmi: stór fyrirlestrasalur
 dæmi: stórt skip
 2
 
 mikill að umfangi
 dæmi: stór ráðstefna
 dæmi: stórt fyrirtæki
 dæmi: bókin er eitt stærsta verk höfundarins
 dæmi: stórar fjárupphæðir
 dæmi: lögreglan rannsakar nú stóra fíkniefnamálið
 3
 
 mikilvægur
 dæmi: stór fornleifafundur
 dæmi: liðið vann stóran sigur
 dæmi: leikarinn fer með stórt hlutverk í myndinni
  
orðasambönd:
 láta stór orð falla
 
 taka sterkt til orða í ásökun eða gagnrýni
 taka á honum stóra sínum
 
 beita sig aga/sjálfsaga, taka í sig kraft
 dæmi: ég varð að taka á honum stóra mínum til að byrja að lesa undir prófið
 vera stór upp á sig
 
 vera yfirlætisfullur, þóttafullur
 <horfa á húsið> stórum augum
 
 horfa á það fullur undrunar
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík