Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

tala so info
 
framburður
 beyging
 1
 
 nota mannlegt tungumál, mynda heyranleg orð
 dæmi: hlustaðu á mig, ekki tala
 dæmi: ég þarf að tala við þig
 dæmi: hún talar stundum í símann
 dæmi: við töluðum um liðnar stundir
 dæmi: presturinn talaði um syndina
 tala illa um <hana>
 tala vel um <hann>
 tala um (alla) heima og geima
 tala á <sænsku>
 
 dæmi: hún talaði á dönsku við þjóninn
 tala <þýsku>
 
 fallstjórn: þolfall
 dæmi: hann talar ágæta ensku
 2
 
 tala + af
 
 tala af sér
 
 segja of mikið
 3
 
 tala + saman
 
 tala saman
 
 eiga samtal, ræðast við
 dæmi: starfsmennirnir tala saman í kaffitímunum
 dæmi: þeir töluðu saman um uppskeruna
 4
 
 tala + til
 
 tala <hana> til
 
 fá hana til e-s í orðum, sannfæra hana
 dæmi: hann drekkur of mikið, læknirinn hefur reynt að tala hann til
 5
 
 tala + um fyrir
 
 tala um fyrir <honum>
 
 fá hann til að hætta við e-ð, skipta um fyrirætlun
 dæmi: hún ætlar ekki lengur að hætta í námi, vinur hennar hefur talað um fyrir henni
 6
 
 tala + út
 
 tala út
 
 segja allt sem þarf, ljúka máli sínu
 dæmi: við skulum leyfa honum að tala út
  
orðasambönd:
 láta verkin tala
 
 framkvæma hlutina fremur en að tala bara um þá
 talast
 talaður
 talandi
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík