Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

kominn lo info
 
framburður
 beyging
 orðhlutar: kom-inn
 form: lýsingarháttur þátíðar
 1
 
 lýsingarháttur þátíðar notaður um nýliðna atburði
 dæmi: ég er kominn heim
 dæmi: hann er kominn í frí
 dæmi: hún er komin á eftirlaun
 dæmi: ég er komin á blaðsíðu 70
 dæmi: hann er kominn með nýja kærustu
 2
 
 vera að því kominn að <gráta>
 
 byrja næstum því að gráta
 dæmi: fjallgöngumennirnir voru að því komnir að gefast upp
 <húsið> er að <hruni> komið
 
 það er í svo slæmu ástandi að það gæti hrunið
 3
 
 um ætterni
 vera kominn af <bændum>
 
 eiga bændur sem forfeður, afa og ömmu
 dæmi: hún er komin af aðalsmönnum í föðurættina
 4
 
 um ástand
 vera kominn með <ístru>
 vera að niðurlotinn kominn
 
 vera alveg að örmagnast
 vera hætt kominn
 
 vera í hættu
 dæmi: tveir menn voru hætt komnir þegar bát þeirra hvolfdi
 vera vel/illa á sig kominn
 
 vera í góðu/slæmu ástandi
 dæmi: fólkið var misjafnlega á sig komið eftir jarðskjálftann
 5
 
 vera langt/stutt kominn
 
 vera búinn með mikið eða lítið
 dæmi: flestir nemendur eru langt komnir með ritgerðinar
 6
 
 vera vel að <sigrinum> kominn
 
 verðskulda sigurinn vel
 dæmi: hún er vel að verðlaununum komin
 7
 
 vera upp á <hana> kominn
 
 vera háður henni
 dæmi: hann er upp á skyldfólk sitt kominn með húsnæði
 8
 
 <árangurinn> er undir <þessu> kominn
 
 árangurinn veltur á þessu, fer eftir þessu
 dæmi: útgáfa bókarinnar er undir því komin hvort styrkur fáist
 koma
 komast
 komandi
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík