|
framburður |
| beyging |
| 1 |
|
| fallstjórn: þágufall + þolfall | | láta (e-n) hafa (e-ð) að gjöf | | dæmi: hann gaf henni hring | | dæmi: þau gáfu afmælisbarninu góða gjöf | | dæmi: mér var gefin þessi bók | | dæmi: henni voru gefnir leðurhanskar |
|
| 2 |
|
| fallstjórn: þágufall + þolfall | | veita (e-m) (e-ð) | | dæmi: hann gaf mér leyfi til að skreppa frá | | dæmi: þeir gefa okkur kost á að andmæla | | dæmi: vinnustaðurinn gefur frí í dag | | dæmi: föngunum var gefið frelsi |
|
| 3 |
|
| fallstjórn: þágufall + þolfall | | veita (e-m) mat, drykk, næringu, fóðra (e-n) | | dæmi: ég þarf að gefa kettinum | | dæmi: hann gaf gestinum að borða | | dæmi: hún gaf börnunum súpu og brauð | | dæmi: gestunum var gefið vín og snittur |
|
| 4 |
|
| fallstjórn: þolfall | | gefa sig | |
| láta undan, bresta, bila | | dæmi: gamla brúin gaf sig undan vörubílnum | | dæmi: vatnsrör gaf sig í frostinu | | dæmi: þessir skór eru farnir að gefa sig |
|
|
| 5 |
|
| fallstjórn: þolfall | | gefa sig á vald <tilfinningunum> | |
| láta tilfinningarnar ná tökum á sér |
|
|
| 6 |
|
| fallstjórn: þágufall | | gefa sér <þetta> | |
| setja sér þessa forsendu, þessar aðstæður, "setjum svo að ..." | | dæmi: gefum okkur að allir jöklar á landinu bráðni, hvað verður þá? |
|
|
| 7 |
|
| það gefur <góðan byr> | |
| | það gefur á bátinn | |
| sjór skvettist yfir bátinn |
|
|
| 8 |
|
| gefa + að | |
| fallstjórn: þolfall | | gefa sig að <þessu> | |
| beina kröftum sínum og tíma að þessu | | dæmi: hún hefur gefið sig alveg að góðgerðarmálum |
|
|
|
| 9 |
|
| gefa + af | |
| <jörðin> gefur <lítið> af sér | |
| bújörðin veitir lítinn ágóða eða uppskeru |
|
|
|
| 10 |
|
| gefa + á | |
| fallstjórn: þolfall | | gefa sig á tal við <hana> | |
| byrja að tala við hann, hefja samræður við hann | | dæmi: ég gaf mig á tal við lögregluþjón |
|
|
|
| 11 |
|
| gefa + eftir | |
| gefa eftir | |
| 1 | |
| láta undan, slaka á (kröfum, reglufylgni) | | dæmi: launþegar ætla ekkert að gefa eftir í samningunum |
| | 2 | |
| láta undan, þenjast, teygjast | | dæmi: buxurnar eru þröngar en efnið gefur vel eftir |
|
| | gefa <honum> <ekkert> eftir | |
| fallstjórn: þágufall | | vera ekkert verri en hann | | dæmi: hún er góð í skák en hann gefur henni ekkert eftir | | dæmi: ódýru þvottavélarnar gáfu þeim dýru lítið eftir í könnunum |
|
|
|
| 12 |
|
| gefa + fram | |
| fallstjórn: þolfall | | gefa sig fram | |
| láta vita af sér, koma sér á framfæri | | dæmi: tvö vitni að árekstrinum hafa gefið sig fram | | dæmi: þjófurinn gaf sig fram við lögregluna |
|
|
|
| 13 |
|
| gefa + frá | |
| a | |
| gefa frá sér <lykt> | |
| láta frá sér <lykt> | | dæmi: blómin gefa frá sér sæta angan | | dæmi: hvalir geta gefið frá sér hátt hljóð |
|
| | b | |
| gefa frá sér <verkefnið> | |
| láta það frá sér, hafna því |
|
|
|
|
| 14 |
|
| gefa + fyrir | |
| fallstjórn: þolfall | | a | |
| gefa <mikið> fyrir <hestinn> | |
| borga mikið fyrir hestinn | | dæmi: hvað gáfuð þið fyrir þennan bíl? |
|
| | b | |
| gefa <ekki mikið> fyrir <orð hans> | |
| taka lítið mark á orðum hans |
|
|
|
|
| 15 |
|
| gefa + inn | |
| fallstjórn: þágufall + þolfall | | gefa <henni> inn lyf | |
| láta hana taka lyf, gefa henni lyf |
|
|
|
| 16 |
|
| gefa + í | |
| fallstjórn: þolfall | | a | |
| gefa í | |
| auka hraðann (á bíl) | | dæmi: hún gaf í þegar þorpið var að baki |
|
| | b | |
| gefa sig í <þetta> | |
| beina kröftum sínum og tíma að þessu |
|
|
|
|
| 17 |
|
| gefa + saman | |
| fallstjórn: þolfall | | gefa <þau> saman | |
| gifta þau | | dæmi: þau voru gefin saman í lítilli kirkju |
|
|
|
| 18 |
|
| gefa + til baka | |
| fallstjórn: þágufall + þolfall | | gefa <honum> <smápeninga> til baka | |
| láta hann hafa smápeninga yfir búðarborðið | | dæmi: búðarkonan gaf mér of lítið til baka |
|
|
|
| 19 |
|
| gefa + upp | |
| fallstjórn: þolfall | | a | |
| gefa <þetta> upp | |
| skýra frá þessu, veita upplýsingar um þetta | | dæmi: maðurinn sem hringdi gaf ekki upp rétt nafn | | dæmi: hún vill ekki gefa upp aldur sinn |
|
| | b | |
| gefa upp <tekjur sínar> | |
| greina frá tekjum sínum á skattframtali |
|
| | c | |
| gefa upp <boltann> | |
| kasta upp bolta, t.d. í blaki |
|
|
|
|
| 20 |
|
| gefa + út | |
| fallstjórn: þolfall | | gefa út <bækur> | |
| annast útgáfu á bókum | | dæmi: bókin er gefin út í stóru upplagi |
|
|
|
| gefast |
| gefinn |
| uppgefinn |