Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

tunna no kvk
 
framburður
 beyging
 1
 
 stórt ílát (allt að 100 l) úr tré eða gerviefni, oftast sívalt, einkum undir vökva eða matvæli
 [mynd]
 dæmi: síldin var söltuð í tunnur
 2
 
 sorptunna
 [mynd]
 dæmi: hann fór með ruslið út í tunnu
  
orðasambönd:
 <sitja, standa> eins og síld í tunnu
 
 ... mjög þétt, í einni kös
 slá köttinn úr tunnunni
 
 leikur þar sem börn skiptast á að slá með priki í tunnu þangað til hún fer alveg í sundur, tengt öskudegi
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík