Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

skipting no kvk
 
framburður
 beyging
 orðhlutar: skipt-ing
 1
 
 það að skipta e-u, það hvernig e-ð skiptist í tvo eða fleiri hluta
 dæmi: þeir deildu um skiptingu gróðans
 dæmi: erfingjarnir undirbúa skiptingu jarðarinnar á milli sín
 dæmi: skipting sólarhringsins í 24 klukkustundir
 2
 
 lína sem skilur að hárið á hvirflinum
 dæmi: hún er með skiptinguna vinstra megin
 
_____________________
Úr málfarsbankanum:

Athugið sérstaklega að eignarfall eintölu orðsins <i>skipting</i> er <i>skiptingar</i> en ekki „skiptingu“ og eignarfall eintölu með greini er <i>skiptingarinnar</i> en ekki „skiptingunnar“.
_________________________________
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík