Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

teljast so info
 
framburður
 beyging
 form: miðmynd
 1
 
 vera álitinn (e-ð)
 dæmi: telst þetta vera list?
 dæmi: sakamálið telst nú upplýst
 dæmi: það verður að teljast ólíklegt að það snjói í dag
 2
 
 teljast (ekki) með
 
 vera (ekki) tekinn með
 dæmi: glæpasögur teljast ekki með í þessum útgáfutölum
 dæmi: sum verkefnin töldust ekki með í lokaeinkunn
 teljast til <þessa hóps>
 
 vera hluti af (e-u)
 dæmi: plantan telst til illgresis víðast hvar
 3
 
 frumlag: þágufall
 <mér> telst (svo) til
 
 ég tel (e-ð), ég met fjöldann svo
 dæmi: mér telst til að í bókinni séu 40 myndir
 dæmi: lögreglu taldist svo til að 1500 manns væru á torginu
 telja
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík