Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

enginn fn
 
framburður
 beyging
 óákveðið fornafn
 1
 
 sérstætt
 (um fólk almennt) ekki einn einasti
 dæmi: það trúir þeim enginn þótt þau séu að segja satt
 dæmi: þau eru nýflutt og þekkja engan í hverfinu
 dæmi: þú mátt engum segja frá þessu
 dæmi: finnur enginn skrýtna lykt?
 2
 
 hliðstætt
 ekki nokkur eða nokkuð af því tagi sem vísað er til
 dæmi: hér eru engir ferðamenn á þessum árstíma
 dæmi: það er enginn vandi að baka svona köku
 dæmi: þau fengu engin svör við bréfinu
 dæmi: hann átti í engum vandræðum með að fylgja leiðbeiningunum
 á engan hátt
 
 ekki að nokkru leyti
 dæmi: starfsmaðurinn fór á engan hátt út fyrir verksvið sitt
 engan veginn
 
 ekki á nokkurn hátt, alls ekki
 dæmi: þessar buxur passa engan veginn við jakkann sem þú ert í
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík