Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

segja so info
 
framburður
 beyging
 1
 
 fallstjórn: þolfall
 gefa frá sér orð, tjá sig í orðum
 dæmi: ég veit það, sagði hún
 dæmi: ég sagði þetta í gríni
 dæmi: hann sagði það kæruleysislega
 hvað segirðu (gott)?
 
 hvað er að frétta, hvernig hefurðu það?
 ég segi allt gott/ágætt
 sagan segir <þetta>
 
 sagnir herma, þetta hefur verið vitað lengi
 sagt er að <þarna sé reimt>
 segja allt af létta
 
 skýra hreinskilnislega frá öllu
 segja eins og er
 
 tala af hreinskilni
 dæmi: ef ég á að segja eins og er þá finnst mér þessi matur ekki góður
 sagði ég ekki
 
 ég var búin að segja þetta
 dæmi: hann kom aftur of seint í dag - sagði ég ekki
 það er óhætt að segja <þetta>
 
 ekki er of mikið fullyrt með þessu
 dæmi: það er óhætt að segja að kenningin er umdeild
 það má með sanni segja
 
 þetta er sannarlega þannig
 dæmi: það má með sanni segja að þetta sé glæsilegt leikhús
 2
 
 fallstjórn: þágufall + þolfall
 greina (e-m) frá (e-u) í orðum
 dæmi: hún sagði honum sannleikann
 dæmi: geturðu sagt mér hvað klukkan er?
 3
 
 fallstjórn: þágufall + þolfall
 gefa (e-m) fyrirmæli, skipa (e-m) að gera e-ð
 dæmi: kennarinn sagði börnunum að læra kvæðið
 dæmi: segðu honum að ég þurfi að tala við hann
 4
 
 hafa upplýsingagildi
 dæmi: þessar tölur segja mér ekkert
 <þetta> segir sig sjálft
 
 þetta er augljóst
 5
 
 segja + af
 
 a
 
 segja af sér
 
 hætta embættisstörfum með yfirlýsingu
 dæmi: ráðherrann íhugar að segja af sér
 b
 
 hvað segirðu af <föður þínum>?
 
 hvað er að frétta af honum?
 c
 
 hafa <lítið> af <henni> að segja
 
 hafa lítil samskipti við hana eða reynslu af henni
 6
 
 segja + frá
 
 segja <henni> frá <ferðinni>
 
 fallstjórn: þágufall
 greina henni frá ferðinni
 dæmi: börnin sögðu frá sumarfríi sínu
 dæmi: geturðu sagt mér frá fyrirlestrinum?
 dæmi: í bókinni segir frá því þegar þeir stofnuðu popphljómsveit
 7
 
 segja + fyrir
 
 a
 
 segja <atburðinn> fyrir
 
 spá fyrir um atburðinn
 b
 
 segja <henni> fyrir verkum
 
 skipa henni fyrir hvað hún eigi að gera
 8
 
 segja + til
 
 a
 
 segja til
 
 láta vita
 dæmi: segðu til hvað þú vilt mikið í glasið
 b
 
 segja til <hans>
 
 uppljóstra um hann
 c
 
 segja <honum> til
 
 leiðbeina honum
 dæmi: hún segir nýju starfsmönnunum til
 d
 
 <þreytan> segir til sín
 
 þreytan finnst, hefur áhrif
 dæmi: verðhækkanir eru farnar að segja til sín hjá almenningi
 e
 
 segja til um <þetta>
 
 meta þetta
 dæmi: erfitt er að segja til um aldur handritsins
 f
 
 <hagtölur> segja til um <lífsgæðin>
 
 hagtölur gefa upplýsingar um þau
 9
 
 segja + um
 
 a
 
 hvað segir þú um að <fara í gönguferð>?
 
 (sem uppástunga) hvernig líst þér á að fara í gönguferð?
 b
 
 segja <eitthvað> um <þetta>
 
 tjá sig um þetta
 dæmi: viljið þið segja eitthvað um nýja samninginn?
 dæmi: hann sagði ýmislegt merkilegt um hvali
 10
 
 segja + upp
 
 a
 
 segja upp
 
 segjast vera hættur að vinna hér
 segja <starfinu> upp
 
 fallstjórn: þágufall
 tilkynna uppsögn sína
 segja <henni> upp <starfinu>
 
 fallstjórn: þágufall
 láta hana hætta störfum
 b
 
 segja <kærastanum> upp
 
 fallstjórn: þágufall
 hætta með kærastanum
 11
 
 segja + úr
 
 segja sig úr <flokknum>
 
 tilkynna að maður er ekki lengur meðlimur í þessum stjórnmálaflokki
 12
 
 segja + við
 
 a
 
 segja <þetta> við <hana>
 
 tala þessi orð til hennar
 dæmi: ég þori ekki að segja þetta við hann
 b
 
 segja <ekkert> við <þessu>
 
 andmæla þessu ekki
 dæmi: við getum ekkert sagt við því þótt hann fái sér kött
  
orðasambönd:
 mér segir svo hugur um <þetta>
 
 ég hef ákveðinn grun um þetta, ég tel þetta sennilegt
 segja starfi sínu lausu
 
 tilkynna uppsögn sína, segja upp starfinu
 það er að segja
 
 það er að segja
 segjast
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík