Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

hugsa so info
 
framburður
 beyging
 1
 
 beina huganum að e-u
 dæmi: bíddu aðeins, ég þarf að hugsa
 hugsa sig um
 
 velta málinu í huganum
 dæmi: hún hugsaði sig lengi um áður en hún svaraði
 hugsa um <hana>
 
 dæmi: hann hugsaði um atburði gærdagsins
 dæmi: ég hugsa oft um hvað þetta er óréttlátt
 hugsa upphátt
 
 segja það sem maður hugsar
 2
 
 álíta (e-ð), halda (e-ð)
 dæmi: ég hugsa að hún komi um áttaleytið
 3
 
 hafa hugsað sér að <flytja>
 
 hafa áform um að flytja
 dæmi: hvað hafið þið hugsað ykkur að gera í sumarfríinu?
 4
 
 geta hugsað sér <þetta>
 
 sjá þetta sem möguleika
 dæmi: hann getur ekki hugsað sér að vinna með henni
 dæmi: ég gæti vel hugsað mér að búa á Spáni
 5
 
 táknar undrun eða hneykslun
 að hugsa sér
 
 dæmi: að hugsa sér frekjuna í manninum
 dæmi: að hugsa sér ef engin öfund væri til
 hugsaðu þér
 
 dæmi: hugsaðu þér hvað við höfum það gott hér
 6
 
 hugsa + fyrir
 
 hugsa fyrir <þessu>
 
 taka þetta með í reikninginn, gera áætlun
 dæmi: hann hugsaði fyrir öllu og tók með tappatogara
 7
 
 hugsa + til
 
 a
 
 hugsa til <hans>
 
 hafa hann í huga sér
 dæmi: ég hugsaði til þín þegar ég las póstkortið
 b
 
 geta ekki til þess hugsað
 
 finnast það vond tilhugsun
 dæmi: hann getur ekki til þess hugsað að fyrirtækið falli í hendur útlendinga
 8
 
 hugsa + um
 
 hugsa um <garðinn>
 
 annast garðinn
 dæmi: hún hugsar aldrei um uppvaskið
 9
 
 hugsa + upp
 
 hugsa <þetta> upp
 
 koma þetta til hugar, detta þetta í hug
 dæmi: hún hugsaði upp nýja aðferð við söluna
 10
 
 hugsa + út í
 
 hugsa út í <þetta>
 
 beina huganum að þessu, hugleiða þetta
 dæmi: ég hef aldrei hugsað út í það hvað tré eru mikilvæg
 hugsast
 hugsandi
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík