Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

hinn fn
 
framburður
 beyging
 ábendingarfornafn
 1
 
 hliðstætt
 ábendingarfornafn; bendir á annan en þann sem er tilgreindur, nálægastur eða áður hefur verið talað um
 stendur með nafnorði með greini
 dæmi: Steini er kominn en hinir strákarnir koma í kvöld
 dæmi: settu fiskinn í pottinn ásamt öllu hinu hráefninu
 dæmi: hin myndin sem ég sá um helgina var samt skemmtilegri
 dæmi: sumir geta það sem er ómögulegt fyrir okkur hin
 2
 
 sérstætt
 ábendingarfornafn; bendir á annan en þann sem er tiltekinn, nálægastur eða áður hefur verið talað um
 dæmi: tveir keppendur eru langt á undan öllum hinum
 dæmi: maturinn er tilbúinn, viltu kalla á hina
 3
 
 í samanburði milli tveggja einstaklinga eða hópa
 dæmi: seinni sagan var ekki eins áhrifarík og hin
 4
 
 sérstætt, sem atviksorð
 hinn daginn, daginn eftir morgundaginn
 dæmi: þau fara ekki á morgun heldur hinn
 4
 
 í föstum orðasamböndum
 hinir og þessir
 
 ýmsir
 dæmi: við gáfum hina og þessa hluti á tombóluna
 dæmi: það hafa hinir og þessir hringt
 þessi ... hinn
 
 um andstæður, í samanburði
 dæmi: þessi bíll er orðinn gamall en hinn er alveg nýr
 dæmi: þú getur fengið þessar en hinar eru fráteknar
 annar ... hinn
 
 um tvo eða tvennt
 í umtali um tvo eða samanburði milli tveggja
 dæmi: önnur stelpan er systir mín en hin er vinkona hennar
 dæmi: þeir vildu gjarnan lána okkur annan en ekki hinn
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík