Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

eining no kvk
 
framburður
 beyging
 orðhlutar: ein-ing
 1
 
 afmarkaður hluti af heild
 dæmi: einungis stórar einingar í sjávarútvegi gefa nægan arð
 2
 
 samkomulag, samstaða
 dæmi: það er ekki eining innan flokksins um málið
 3
 
 mælanlegur hluti náms í skóla sem tekinn er fyrir í einu, námseining
 dæmi: 30 eininga nám
 
_____________________
Úr málfarsbankanum:

Athugið sérstaklega að eignarfall eintölu orðsins <i>eining</i> er <i>einingar</i> en ekki „einingu“ og eignarfall eintölu með greini er <i>einingarinnar</i> en ekki „einingunnar“.
_________________________________
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík