Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

eftir fs
 
framburður
 fallstjórn: þolfall/þágufall
 1
 
 fallstjórn: þolfall
 (um tímaafstöðu) síðar en það sem tilgreint er
 dæmi: ég get komið eftir kl. 5
 dæmi: flýta sér heim eftir ballið
 2
 
 fallstjórn: þolfall
 um orsakarsamhengi
 dæmi: ég var orðinn lúinn eftir gönguna
 dæmi: hann er enn með ör eftir flugnabitið
 3
 
 fallstjórn: þolfall
 um höfund
 dæmi: grein eftir virtan fræðimann
 dæmi: skáldsagan er eftir Laxness
 4
 
 fallstjórn: þágufall
 (með hreyfingarsögnum) um e-ð sem náð er í/sótt
 dæmi: hann skrapp út í búð eftir brauði
 dæmi: ég ætla að skjótast heim eftir veskinu
 5
 
 fallstjórn: þágufall
 um hreyfingu eða stefnu á yfirborði e-s
 dæmi: hún skreið varlega eftir þakinu
 6
 
 fallstjórn: þágufall
 samkvæmt, í samræmi við e-ð
 dæmi: skólinn starfar eftir reglum ráðuneytisins
 dæmi: þeir fá greidd laun eftir vinnuframlagi
 eftir því sem
 
 í réttu hlutfalli við (e-ð)
 dæmi: slysahættan eykst eftir því sem ökuhraðinn er meiri
 það er eftir <honum>
 
 dæmi: það var eftir honum að þiggja enga hjálp
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík