Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

sami fn
 
framburður
 beyging
 óákveðið fornafn
 1
 
 sérstætt
 nákvæmlega sá eða það sem þegar var rætt um eða vísað til
 dæmi: kennarinn var sá sami og hafði kennt bróður þeirra
 dæmi: verkefnin eru hin sömu og áður en aðstaðan er betri
 dæmi: það sama á við í flestum fjölskyldum
 dæmi: flugvöllurinn þar var lokaður vegna veðurs og sama gilti um næsta flugvöll
 2
 
 hliðstætt, nafnorðið (oftast) án greinis
 (oft í e.k. samanburði eða samjöfnuði) nákvæmlega sá eða það sem áður hefur verið minnst á eða vísað til
 dæmi: sami stíll hentar ekki öllum
 dæmi: yngstu börnin okkar eru á sama aldri
 dæmi: þau búa í miðbænum og eru með vinnustofu í sama húsi
 dæmi: þú átt að endurtaka sömu æfinguna tíu sinnum
 í sama mund
 
 um leið, á sama andartaki
 dæmi: hún stóð upp og í sama mund var bankað á dyrnar
 í sömu svipan
 
 um leið, á sama andartaki
 dæmi: í sömu svipan voru dyrnar opnaðar
 samur
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík