Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

í kringum fs
 
framburður
 fallstjórn: þolfall
 1
 
 allan hringinn utan um (e-ð)
 dæmi: börnin hópuðust í kringum forsetann
 dæmi: það er há girðing í kringum fangelsið
 hringinn í kringum <húsið>
 
 dæmi: við sigldum hringinn í kringum eyjuna
 hringinn í kringum landið
 
 í öllum landshlutum/byggðum á Íslandi
 dæmi: byggð voru frystihús hringinn í kringum landið
 2
 
 á svæðinu við (e-ð)
 dæmi: það eru mörg veitingahús í kringum höfnina
 3
 
 með e-ð/e-n sem miðdepil/meginatriði
 dæmi: það voru mikil umsvif í kringum síldveiðarnar
 dæmi: það er mikil stemning í kringum landsliðið
 4
 
 í sambandi við (e-ð)
 dæmi: það á að minnka pappírsflóðið í kringum starfsemina
 5
 
 nálægt tilteknum tíma/tímapunkti
 dæmi: skólinn byrjar í kringum 20. ágúst
 dæmi: margir taka sér aukafrí í kringum páskana
 fara + í kringum
 snúast + í kringum
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík