Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

so info
 
framburður
 beyging
 1
 
 fallstjórn: þolfall
 taka við (e-u), öðlast (e-ð)
 dæmi: hún fékk bók í afmælisgjöf
 dæmi: hann fær tímaritið sent heim
 dæmi: ég ætla að fá fjögur rúnnstykki
 dæmi: þeir fengu peninga að láni
 dæmi: nemendurnir fá langt jólafrí
 dæmi: við fengum aðstoð við að mála stofuna
 dæmi: hann fékk flensu í vetur
 2
 
 fallstjórn: þágufall + þolfall
 láta (e-n) hafa (e-ð), rétta (e-ð) að (e-m)
 dæmi: ég fékk honum bréfið
 3
 
 fallstjórn: þágufall + þolfall
 taka sér (e-ð), afla sér (e-s) fyrir sjálfan sig
 fá sér sæti
 
 setjast niður
 dæmi: komdu inn og fáðu þér sæti
 fá sér <mat>
 
 taka sér mat og borða
 dæmi: hann fékk sér glas af vatni
 dæmi: við fengum okkur hressingu á leiðinni
 fá sér <nýjan bíl>
 
 kaupa sér nýjan bíl
 dæmi: hún fær sér föt í hverri viku
 4
 
 háttarsögn, merkir leyfi; mega
 dæmi: börnin fengu að vaka lengi um kvöldið
 dæmi: við fengum að prófa hljóðfærin
 dæmi: hún fær bráðum að kynnast starfinu í frystihúsi
 5
 
 háttarsögn, merkir getu; geta
 dæmi: ég fæ ekki séð neitt vandamál hér
 fá <þessu> framgengt
 
 áorka þessu, koma þessu til leiðar
 6
 
 fá + af
 
 með spurningu eða neitun
 fá (ekki) af sér <að gera þetta>
 
 hafa ekki geð eða hjarta í sér til þess
 dæmi: ég fékk ekki af mér að skilja kettlinginn eftir einan heima
 7
 
 fá + á
 
 <þetta> fær á <mig>
 
 þetta veldur mér ónotum, mér bregður við þetta
 dæmi: fréttin um brunann fékk mjög á þorpsbúana
 fá á baukinn
 
 fá ávítur, skammir
 8
 
 fá + fyrir
 
 fallstjórn: þolfall
 fá <laun> fyrir <vinnuna>
 
 dæmi: þau fengu væna upphæð fyrir bílinn
 fá fyrir ferðina
 
 fá skammir eða refsingu
 dæmi: sá sem rispaði bílinn minn skal fá fyrir ferðina
 fá fyrir hjartað
 
 fá verk eða veikindi í hjartað
 9
 
 fá + inni
 
 fá inni
 
 komast inn (í skóla), komast að á gistihúsi, fá húsaskjól
 fá inni <á gistihúsi>
 
 fá gistingu, húsaskjól
 dæmi: María og Jósef fengu inni í fjárhúsinu
 10
 
 fá + í
 
 fallstjórn: þolfall
 fá <mann> í <smíðina>
 
 tryggja sér hann til að annast smíðina
 dæmi: hann fékk pípara í að tengja ofnana
 11
 
 fá + ofan af
 
 fallstjórn: þolfall
 fá <hana> ofan af <þessu>
 
 reyna að láta hana hætta við þetta
 dæmi: hún fékk hann ofan af því að flytja úr landi
 12
 
 fá + til
 
 fá <hana> til <verksins>
 
 tryggja sér hana til að annast verkið
 dæmi: við fengum garðyrkjumann til að fella tréð
 fá sig ekki til <þess>
 
 hafa ekki geð eða hjarta í sér til þess
 dæmi: hann fékk sig ekki til að ávíta hana
 13
 
 fá + til baka
 
 fallstjórn: þolfall
 fá <100 krónur> til baka
 
 fá greiðslu til baka (t.d. frá afgreiðslumanni)
 dæmi: ég fékk fullt af smápeningum til baka í búðinni
 14
 
 fá + upp úr
 
 fallstjórn: þolfall
 fá <upplýsingar> upp úr <honum>
 
 fá frá honum upplýsingar
 dæmi: ég reyndi að fá upp úr henni uppskriftina að kökunni
 15
 
 fá + út
 
 fallstjórn: þolfall
 fá <vissa upphæð> út
 
 fá vissa upphæð greidda út í hönd, greidda strax
 fá út <tölu>
 
 fá tölu sem útkomu úr dæmi
 dæmi: ég lagði saman tölurnar og fékk út 60
 16
 
 fá + út úr
 
 fallstjórn: þolfall
 fá <eitthvað> út úr <þessu>
 
 fá útrás, nautn við þetta
 dæmi: hvað vill maður fá út úr ástarsambandi?
 fást
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík