Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

ætlast so info
 
framburður
 beyging
 form: miðmynd
 1
 
 ætlast <eitthvað> fyrir
 
 hafa vissa fyrirætlun
 dæmi: hún sá greinilega hvað hann ætlaðist fyrir
 dæmi: ég veit ekki hvað hún ætlast fyrir með þessu
 2
 
 ætlast til <þess>
 
 gera þá kröfu, heimta það, gera ráð fyrir því
 dæmi: skipstjórinn ætlast til þess að sér sé hlýtt
 dæmi: þú getur varla ætlast til að ég trúi þessu
 það er ætlast til <þess>
 
 þess er krafist, gert er ráð fyrir því
 dæmi: það er ætlast til að börnin fari úr skónum inni
 dæmi: það má ekki ætlast til of mikils af honum
 ætla
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík