Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

þessi fn
 
framburður
 beyging
 ábendingarfornafn
 1
 
 hliðstætt
 ábendingarfornafn; bendir á þann (eða þá) sem tiltekinn er, oftast einhver nálægur
 dæmi: þessi kassi þarna á að fara neðst í skápinn
 dæmi: þau hafa aldrei hitt þessar konur áður
 dæmi: mér finnst þetta bindi sem þú ert með ekki passa við skyrtuna
 2
 
 sérstætt
 ábendingarfornafn; bendir á einhvern (eða einhverja) sem er nálægur og oft sýnilegur
 dæmi: hann getur sjaldan þagað þessi
 dæmi: viltu rétta mér bókina - nei, ekki þessa, heldur þá sem liggur við hliðina á henni
 dæmi: vantar þig vettlinga? hérna taktu þessa
 hinir og þessir
 
 ýmsir
 dæmi: það hafa hinir og þessir komið að skoða íbúðina
 dæmi: ég hitti hina og þessa kunningja um helgina
 þessi líka
 
 óformlegt
 (til áherslu með lýsingarorði og/eða nafnorði) mjög, afskaplega
 dæmi: þau fengu þessa líka fínu uppskeru
 dæmi: við fengum þetta líka dásemdarveður í ferðinni
 dæmi: hann varð þetta líka hrifinn af bókinni
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík