Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

það fn
 
framburður
 beyging
 form: hvorugkyn
 1
 
 3. persóna; vísar til nafnorðs (eða nafnliðar) í hvorugkyni eintölu
 dæmi: barnið meiddi sig og nú grætur það hástöfum
 dæmi: gólfið verður mjög hált þegar það er blautt
 dæmi: borðið er svo kámugt - viltu þurrka af því fyrir mig?
 2
 
 3. persóna; vísar til aukasetningar eða setningarliðar (sem aukafrumlag eða -andlag o.fl.)
 dæmi: það er ekki sanngjarnt að við þurfum alltaf að vaska upp
 dæmi: ég sakna þess mjög að geta ekki lengur gengið heim
 dæmi: það eru sex strákar og níu stelpur í bekknum
 dæmi: myndin byrjar klukkan átta, er það ekki?
 dæmi: það voru dregnir út þrír vinningar í happdrættinu
 dæmi: það hefur einhver stolið hjólinu mínu
 3
 
 ábendingarfornafn; með fallorði í hvorugkyni eintölu eða eitt sér, oft með aukasetningu
 dæmi: það verkefni sem dómnefndinni líst best á fær styrkinn
 dæmi: bláber eru það besta sem ég fæ
 dæmi: þeir lugu öllu því sem þeir sögðu í viðtalinu í gær
 dæmi: vegna þess sem ég sagði þér í símann
 4
 
 merkingarlaust gervifrumlag í upphafi setninga um veður, ástand, tíma o.þ.h., frumlagslausra þolmyndarsetninga o.fl.
 bara nefnifall og eingöngu fremst í setningu
 dæmi: það rignir oft mikið á haustin
 dæmi: það er kalt í tjaldinu
 dæmi: það er orðið áliðið
 dæmi: það fjölgaði um einn starfsmann á árinu
 dæmi: það var sungið og spilað langt fram á nótt
 5
 
 í ýmsum föstum orðasamböndum
 það er nú það
 
 einkum notað í samtölum á undan óþægilegum tíðindum
 dæmi: hvar er tertan? -- það er nú það, það varð smá slys og hún er ónýt
 það sem af er <árinu>
 
 þar til nú, hingað til, sá tími sem liðinn er (af ákveðnu tímabili)
 dæmi: það sem af er þessu ári hefur veðrið verið mjög gott
 dæmi: þeim hefur gengið vel á mótinu það sem af er
 þá það
 
 allt í lagi (þegar eitthvað er samþykkt treglega)
 <rétt> í því
 
 um leið, í sömu andrá
 dæmi: þau komu rétt í því að við vorum að fara
 6
 
 niðrandi
 tiltekinn en ótilgreindur hópur af fólki
 dæmi: það þykist eitthvað fínna en aðrir, það á Brekku
 7
 
 sem atviksorð
 svo, nógu
 dæmi: bókin er ekki það skemmtileg að ég nenni að lesa hana aftur
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík