Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

vilja so info
 
framburður
 beyging
 1
 
 fallstjórn: þolfall
 hafa vissan vilja, löngun
 dæmi: ég vil ekki fara að sofa!
 dæmi: hún vill ekki búa í borg
 dæmi: við viljum helst sitja á fremsta bekk
 dæmi: þú getur fengið eintak ef þú vilt
 <meira en hann> vill vera láta
 
 meira en hann lætur í ljós, gefur til kynna
 dæmi: þessi niðurstaða er ekki jafn örugg og höfundurinn vill vera láta
 2
 
 (í viðtengingarhætti) táknar ósk
 dæmi: ég vildi að það færi að snjóa
 3
 
 táknar beiðni eða skipun
 dæmi: viltu sópa gólfið?
 dæmi: viltu nokkuð færa þig svolítið?
 dæmi: vilt þú vera svo góð að útskýra þetta
 dæmi: viljið þið þegja!
 4
 
 fallstjórn: þágufall
 eiga visst erindi
 dæmi: hvað viltu mér?
 dæmi: hvað var presturinn að vilja hér?
 5
 
 fallstjórn: þágufall
 vilja <honum> vel
 
 óska honum alls góðs
 6
 
 sem háttarsögn í nokkrum samböndum
 það vill <fara svo>
 
 það hefur tilhneigingu til að fara þannig
 dæmi: oft vill það fara svo að skoðanir manna breytast
 <sumir aflýstu> eins og oft vill verða
 
 ... eins og gerist oft
 það vildi <honum> til happs að <hann var með eldspýtur>
 
 hann var svo heppinn, það var svo heppilegt að ...
 7
 
 sem merkingarsnauður aukasagnliður
 vilja halda <þessu> fram
 
 halda þessu fram
 dæmi: ég vil halda því fram að bókin sé meistaraverk
 vilja meina <þetta>
 
 hafa þessa skoðun
 dæmi: hann vill meina að bakaðar kartöflur séu óhollar
 8
 
 vilja + til
 
 það vill þannig til að <hann er staddur hér>
 
 því er þannig háttað, fyrir tilviljun, að hann er hér
 dæmi: það vildi þannig til að ég var heima þann dag
 svo <vel> vildi til
 
 það var svo heppilegt
 dæmi: svo óheppilega vildi til að bíllinn var bilaður
 <þetta> vildi <þannig> til
 
 þetta gerðist þannig
 dæmi: veistu hvernig slysið vildi til?
 viljandi
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík