Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

við fs
 
framburður
 fallstjórn: þolfall/þágufall
 1
 
 fallstjórn: þolfall
 (um staðsetningu) þétt hjá (e-u)
 dæmi: stóllinn stendur við borðið
 dæmi: ég lagði bílnum við stöðumæli
 2
 
 fallstjórn: þágufall
 á móti, gegnt
 dæmi: húsið snýr hornrétt við veginum
 3
 
 fallstjórn: þolfall
 með vísun til aðstæðna
 dæmi: þarna voru ræktuð tré við erfið skilyrði
 dæmi: hann gleymdi sér við lesturinn
 dæmi: kórinn söng nokkur lög við góðar undirtektir áheyrenda
 4
 
 fallstjórn: þolfall
 um félagsskap/tengsl
 dæmi: hann stofnaði fyrirtækið í félagi við bróður sinn
 dæmi: samvinnan við lögregluna hefur gengið vel
 5
 
 fallstjórn: þágufall
 gagnvart, í sambandi við
 dæmi: viðbrögðin við gagnrýninni komu mér á óvart
 dæmi: hann neitar að koma - hvað getum við gert við því?
 6
 
 fallstjórn: þolfall
 um tíma
 dæmi: við lögðum af stað við sólarupprás
 dæmi: margir líta yfir farinn veg við áramótin
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík