Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

vefa so info
 
framburður
 beyging
 fallstjórn: þolfall
 búa til klæði, dúk, teppi e.þ.h. í ramma eða vefstól með því að bregða þræði til (ívafi) til skiptis yfir og undir uppistöðu
 dæmi: hún vefur fallegar mottur úr ull
 dæmi: hann sat og óf á vefstólinn
 ofinn
 
_____________________
Úr málfarsbankanum:

Sagnirnar <i>vefa</i> og <i>vefja</i> beygast mjög ólíkt ef frá er talin nútíð eintölu (<i>ég vef, þú vefur, hann vefur</i>). <i>Hann vefur teppi og hún vefur vindla.</i>Þetta samfall í nútíðinni virðist leiða til ruglings á þátíðinni sem ber auðvitað að varast. <i>Hann óf teppi og hún vafði vindla.</i><br><i>Vefa</i>: Kennimyndir: vefa, óf, ófum, ofið.<br><i>Vefja</i>: Kennimyndir: vefja, vafði, vafið.
_________________________________
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík