Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

úr fs
 
framburður
 fallstjórn: þágufall
 1
 
 með vísun til stefnu innan frá og út (svo að e-ð losnar frá fyrri stað)
 dæmi: bensínið lekur úr tanknum
 dæmi: taktu pakkann úr umbúðunum
 2
 
 með vísun til hreyfingar frá e-m stað
 dæmi: hvenær kemurðu aftur úr sveitinni?
 3
 
 með vísun til uppruna
 dæmi: flestir nemendurnir eru úr Reykjavík
 4
 
 um hluta stærri heildar
 dæmi: ég kann bara lítið brot úr kvæðinu
 dæmi: kom enginn úr stjórninni á fundinn?
 5
 
 um orsök/ástæðu
 dæmi: hann lést úr krabbameini
 dæmi: ég er að drepast úr leiðindum
 6
 
 um efnið sem e-ð er gert úr
 dæmi: peysan er úr ull
 dæmi: blómapottur úr leir
 7
 
 um tíma eftir tímapunkt sem miðað er við
 úr því
 
 fljótlega eftir það
 dæmi: það má geyma fiskinn í tvo daga en úr því fer hann að skemmast
 úr þessu
 
 héðan af (fyrst það er ekki þegar orðið)
 dæmi: hún ætlaði að koma fyrir hálftíma svo að hún kemur varla úr þessu
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík