Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

upp undir fs/ao
 
framburður
 fallstjórn: þolfall/þágufall
 1
 
 um hreyfingu fast að e-u
 dæmi: skipið sigldi upp undir ströndina
 dæmi: skápurinn nær alveg upp undir loft
 dæmi: það hefur verið frost en hitinn hefur þó farið upp undir frostmark
 2
 
 um staðsetningu fast við e-ð
 dæmi: glugginn er alveg upp undir þaki
 dæmi: skipið lá í vari upp undir landi
 3
 
 sem atviksorð
 (um mælanlega stærð/magn o.þ.h.) nærri því
 dæmi: svona bíll kostar upp undir milljón
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík