Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

uppbygging no kvk
 
framburður
 beyging
 orðhlutar: upp-bygging
 1
 
 það að efla e-ð, efling
 dæmi: uppbygging atvinnulífsins
 dæmi: uppbygging fiskistofnanna
 2
 
 það að byggja e-ð upp aftur eftir eyðileggingu, endurreisn
 dæmi: uppbyggingin er hafin á jarðskjálftasvæðinu
 3
 
 bygging, gerð
 dæmi: uppbygging jarðskorpunnar
 
_____________________
Úr málfarsbankanum:

Orðið <i>uppbygging</i> er kvenkynsnafnorð sem yfirleitt er aðeins notað í eintölu.<br>Athugið sérstaklega að eignarfallið er <i>uppbyggingar</i> en ekki „uppbyggingu“<br>og eignarfall með greini er <i>uppbyggingarinnar</i> en ekki „uppbyggingunnar“.
_________________________________
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík