Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

á móti fs/ao
 
framburður
 fallstjórn: þágufall
 1
 
 (um staðsetningu) andspænis, gegnt
 dæmi: stoppistöðin er beint á móti skólanum
 2
 
 (um hreyfingu) í áttina til (e-s)
 dæmi: bíllinn kom á móti mér á ofsahraða
 3
 
 um sameiginlega aðild að e-u
 dæmi: foreldrar hennar eiga húsið á móti henni
 dæmi: hún fær að leika á móti frægasta kvikmyndaleikara landsins
 4
 
 um jöfnun í samanburði
 dæmi: koma einhverjar tekjur á móti öllum þessum útgjöldum?
 dæmi: starfið er erfitt en á móti kemur að launin eru góð
 5
 
 andstætt e-u, í andstöðu við (e-ð)
 dæmi: má nafngreina heimildarmennina? - nei, það er á móti öllum venjum
 sjá einnig vera á móti
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík