Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

á milli fs/ao
 
framburður
 fallstjórn: eignarfall
 1
 
 um staðsetningu/afstöðu í rúmi
 dæmi: barnið sat á milli foreldra sinna
 dæmi: hvað er langt á milli Akureyrar og Reykjavíkur?
 dæmi: þau leiddu barnið á milli sín
 2
 
 um afstöðu í tíma
 dæmi: verslunin er opin á milli klukkan 9 og 18
 þess á milli
 
 dæmi: margar ræður voru fluttar en þess á milli voru stutt skemmtiatriði
 dæmi: hann á það til að rífast og skammast en þess á milli er hann ósköp rólegur
 3
 
 (án fallstjórnar) um bil á (hugsuðum) kvarða
 dæmi: gistingin kostar á milli 10 og 20 þúsund
 dæmi: íbúar landsins eru á milli tvær og þrjár milljónir
 3
 
 um tengsl eða samskipti
 dæmi: það hefur alltaf verið góð vinátta á milli heimilanna
 þetta er okkar á milli
 
 dæmi: ég bið þig að nefna þetta ekki, þetta er milli okkar tveggja
  
orðasambönd:
 það má (nú) á milli vera
 
 tjáir viðbrögð við e-u sem þykir ganga úr hófi
 dæmi: hann er víst að skemmta sér um hverja helgi, það má nú á milli vera
 mitt á milli
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík