Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

álagning no kvk
 
framburður
 beyging
 orðhlutar: á-lagning
 1
 
 það að hækka verð vöru á einstökum stigum verslunar
 dæmi: í flestum búðum er töluverð álagning á vörurnar
 2
 
 það að leggja á skatta, skattar
 dæmi: álagning opinberra gjalda
 
_____________________
Úr málfarsbankanum:

Orðið <i>álagning</i> er kvenkynsnafnorð sem yfirleitt er aðeins notað í eintölu.<br>Athugið sérstaklega að eignarfallið er <i>álagningar</i> en ekki „álagningu“<br>og eignarfall með greini er <i>álagningarinnar</i> en ekki „álagningunnar“.
_________________________________
 
_____________________
Úr málfarsbankanum:

Rétt er að gera greinarmun á orðunum <i>álagning</i> og <i>álögur</i> í sambandi við opinber gjöld. Orðið <i>álagning</i> merkir: það að leggja á. <i>Álagning skatta, álagning útsvars, álagning opinberra gjalda.</i> Orðið <i>álögur</i> merkir einfaldlega: opinber gjöld. Það er því rétt að hafa í huga að það er ekki álagningin sjálf sem gjaldfellur heldur álögurnar.
_________________________________
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík