Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

tegund no kvk
 
framburður
 beyging
 1
 
 flokkur eða hópur hluta sem hafa tiltekin samkenni, eru samskonar, framleiddir á sama stað eða á sama hátt
 dæmi: þetta er ný tegund af osti
 dæmi: hér fást margar tegundir af rauðvíni
 2
 
 líffræði
 hópur lífvera sem eru eins í meginatriðum og geta átt saman frjó afkvæmi (grundvallareining í flokkunarfræði lífvera)
 dæmi: í garðinum eru ræktaðar um þúsund tegundir plantna
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík