Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

2 svo st
 
framburður
 1
 
 samtenging (svo eða svo að), táknar afleiðingu sem lýst er í afleiðingarsetningu (sögn í framsöguhætti)
 dæmi: ég var með síma svo ég gat strax hringt í lögregluna
 dæmi: hann var með kort svo hann villtist ekki
 2
 
 samtenging (svo eða svo að), táknar tilgang (sögn í viðtengingarhætti)
 dæmi: hann sáir gulrótafræjum svo hann fái uppskeru í haust
 dæmi: hann ætlar að fara með kort svo hann villist ekki
 svo að
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík