Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

snúast so info
 
framburður
 beyging
 form: miðmynd
 1
 
 fara í hringi
 dæmi: jörðin snýst um sólina
 dæmi: tunglið snýst í kringum jörðina
 dæmi: flaskan snerist í hringi á gólfinu
 2
 
 taka viðbragð
 dæmi: leikmenn urðu að snúast til varnar
 3
 
 sinna erindum
 dæmi: hann var allan daginn að snúast fyrir móður sína
 hafa í mörgu að snúast
 5
 
 breyta afstöðu sinni
 dæmi: þjóðin snerist til kristindóms á 11. öld
 <henni> snýst hugur
 
 dæmi: ég ætlaði í skemmtiferð en mér snerist hugur
 6
 
 snúast + gegn
 verða mótfallinn, andsnúinn (e-u)
 dæmi: hann hefur snúist gegn pólitískum leiðtoga sínum
 7
 
 snúast + í kringum
 
 a
 
 snúast í kringum <hana>
 
 sinna eða þjóna henni
 dæmi: margir þjónar snerust í kringum gestina
 b
 
 <líf hennar> snýst í kringum <barnið>
 
 barnið er aðalverkefni hennar eða áhugamál
 dæmi: öll tilvera mín snerist í kringum mat
 8
 
 snúast + um
 hafa e-ð að viðfangsefni, varða e-ð
 dæmi: nám snýst um að afla sér þekkingar
 9
 
 snúast + upp í
 þróast út í (e-ð)
 dæmi: umræðurnar snerust upp í rifrildi
 10
 
 snúast + við
 breytast, fara í öfuga átt
 dæmi: þróunin í efnahagsmálum snerist við á síðasta áratug
 snúa
 snúinn
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík