Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

skilja so info
 
framburður
 beyging
 fallstjórn: þolfall
 1
 
 hafa vitsmunalegan skilning (á e-u), geta meðtekið (e-ð)
 dæmi: hún skilur rússnesku
 dæmi: ég skil ekki hvað hann meinar
 dæmi: nemendurnir skildu ekki baun í ljóðinu
 dæmi: ég skildi hana vel þegar hún hætti í náminu
 eins og gefur að skilja
 
 eins og skiljanlegt er, augljóslega
 dæmi: brúin er mjög mikilvæg eins og gefur að skilja
 2
 
 greina (e-ð) frá öðru, skipta (e-u) í sundur
 dæmi: mikið fljót skilur löndin tvö
 dæmi: vegfarendur skildu áflogaseggina
 dæmi: umferðareyjar skilja í sundur akbrautirnar
 dæmi: herbergið er skilið í sundur með bókaskápum
 <hér> skilur leiðir
 
 hér liggja leiðir í sitthvora áttina
 dæmi: á torginu skildi leiðir okkar, ég fór niður að ánni
 <sósan> skilur sig
 
 sósan fer í tvö lög
 3
 
 yfirgefa eða kveðja hvor annan
 dæmi: við skildum á flugvellinum
 4
 
 slíta hjónabandi, hætta að vera í hjónabandi
 dæmi: þau hafa ákveðið að skilja
 dæmi: þau skildu fyrir 5 árum
 5
 
 skilja + að
 
 skilja <þá> að
 
 taka þá, færa þá í sundur
 dæmi: systkinin voru skilin að í bernsku
 6
 
 skilja + eftir
 
 skilja <bréfið> eftir
 
 láta bréfið verða um kyrrt
 dæmi: hann skildi bílinn eftir heima og gekk í vinnuna
 dæmi: geturðu skilið lykilinn eftir á borðinu?
 dæmi: hún skildi hundinn eftir einan heima
 7
 
 skilja + frá
 
 skilja sig frá <hinu>
 
 greina sig frá hinu, vera öðruvísi en hitt
 dæmi: plantan skilur sig frá öðrum tegundum þar sem blómin eru gul
 8
 
 skilja + í
 
 skilja ekkert í <þessu>
 
 botna ekkert í þessu, fatta þetta ekki
 dæmi: hún skilur ekkert í sænsku
 dæmi: ég skil ekkert í þér að vera svona reiður
 9
 
 skilja + út undan
 
 skilja <hana> út undan / útundan
 
 taka hana ekki með, horfa framhjá henni
 dæmi: ekkert barn var skilið út undan þegar jólagjöfunum var útbýtt
 10
 
 skilja + við
 
 a
 
 skilja við
 
 deyja
 dæmi: sjúklingurinn skildi við klukkan fjögur
 b
 
 skilja við <hana>
 
 fara í aðra átt en hún
 dæmi: ég skildi við hann á bókasafninu
 c
 
 skilja við <maka sinn>
 
 fá hjónaskilnað við hann
 dæmi: hann skildi við hana vegna ósamkomulags þeirra
 d
 
 skilja <vel> við <húsið>
 
 hafa húsið í góðu ástandi þegar það er yfirgefið
 e
 
 skilja <úrið> aldrei við sig
 
 hafa það ávallt á sér eða nálægt sér
 dæmi: ég skil þennan hring aldrei við mig
 skiljast
 skilinn
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík