Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

samskipti no hk ft
 
framburður
 beyging
 orðhlutar: sam-skipti
 það þegar fólk hefur samgang og samtöl sín á milli
 dæmi: hún sinnir daglegum samskiptum við viðskiptavini fyrirtækisins
 dæmi: hann er lektor í alþjóðlegum samskiptum
 dæmi: samskipti landanna eiga sér langa sögu
 dæmi: bíómyndin fjallar um samskipti kynjanna
 eiga samskipti við <hana>
 
 dæmi: hann átti lítil samskipti við skólafélaga sína
 dæmi: stofnunin á mikil samskipti við lögregluna
 mannleg samskipti
 vera þægilegur í samskiptum
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík