Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

1 annar fn
 
framburður
 beyging
 1
 
 um tvo eða tvennt, hliðstætt, nafnorðið (oftast) með greini
 einn af tveimur
 dæmi: annar handleggurinn reyndist vera brotinn
 dæmi: þau keyptu bara miða aðra leiðina
 dæmi: hann var með hring í öðru eyranu
 dæmi: ég var í skóla með öðrum tvíburanna
 annar ... hinn
 
 (í umtali um tvo eða samanburði milli tveggja)
 dæmi: það lágu tvær bækur á borðinu, önnur var skáldsaga og hin ljóðabók
 dæmi: annar strákurinn er sonur okkar en hinn er besti vinur hans
 dæmi: annað herbergið var málað gult en hitt grænt
 2
 
 (um andstæður) ekki sá (eða það) sem fyrr var talinn eða minnst á
 dæmi: meðlimir félagsins fá tímaritið frítt en aðrir þurfa að kaupa það
 dæmi: þau keyptu gulrætur, rófur og annað grænmeti á markaðnum
 dæmi: okkur fannst gisting og önnur þjónusta vera mjög dýr
 enn annar
 
 einn til viðbótar
 dæmi: einn var keyptur, annar leigður og enn annar tekinn í leyfisleysi
 3
 
 um andstæður, í ýmiss konar samjöfnuði eða samanburði
 dæmi: sumir eru alltaf á ferð og flugi en aðrir vilja helst alltaf vera heima hjá sér
 dæmi: það er enginn einn tími betri en annar fyrir mig
 dæmi: þeir höguðu sér bara eins og aðrir gerðu
 dæmi: tvær ferðir eru minnisstæðari en aðrar
 dæmi: ég vil helst fá frí um helgar eins og aðrir
 öðrum fremur
 
 frekar en aðrir
 dæmi: þetta mál er öðrum fremur erfitt úrlausnar
 4
 
 óformlegt
 einn til viðbótar
 dæmi: kanntu annan?
  
orðasambönd:
 annar eins <maður, fjöldi>
 
 þvílíkur <maður, fjöldi>
 dæmi: þau höfðu aldrei fundið annan eins ilm
 dæmi: engin leiksýning hefur haft önnur eins áhrif á mig
 dæmi: hefurðu nokkurn tíma heyrt aðra eins dellu?
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík