Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

annað fn
 
framburður
 1
 
 óákveðið fornafn
 form: hvorugkyn
 eitt og annað
 
 ýmislegt
 dæmi: í geymslunni leyndist eitt og annað forvitnilegt
 dæmi: þau ræddu eitt og annað á leiðinni
 það er (eitthvað) annað en <hér>
 
 það er (talsvert) öðruvísi en <hér>
 dæmi: það er annað en ég sem er að drepast úr leiðindum
 dæmi: það er eitthvað annað en veðrið fyrir norðan
 annað eins
 
 þvílíkt, eitthvað líkt (og annað)
 dæmi: það var klappað og hrópað - annað eins hafði ekki heyrst lengi
 dæmi: þvílíkt og annað eins!
 annað tveggja
 
 sjaldgæft
 eitt af tvennu, annað hvort (vísar einkum til þess sem er óteljanlegt)
 dæmi: fólk hér er annað tveggja kennt við húsið sem það býr í eða móður sína
 annar
 2
 
 sem atviksorð
 á annan stað
 dæmi: þau eru að fara annað í kvöld og geta því ekki mætt í boðið
 dæmi: þorpsbúar geta keypt allar nauðsynjar í kaupfélaginu en margt þurfa þeir að sækja annað
 annar
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík