Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

reyna so info
 
framburður
 beyging
 fallstjórn: þolfall
 1
 
 gera tilraun til (e-s)
 dæmi: hann reyndi að ýta á alla takkana
 dæmi: hún reynir að hafa garðinn snyrtilegan
 dæmi: ég reyndi að losa skrúfuna
 dæmi: reyndu nú að sofna
 2
 
 prófa (e-ð), sannreyna (e-ð)
 dæmi: þau hafa ekki enn reynt nýju uppþvottavélina
 3
 
 öðlast lífsreynslu
 dæmi: hún hefur þurft að reyna margt um dagana
 4
 
 reyna + að
 
 hafa reynt <hana> að heiðarleika
 
 hafa þá reynslu af henni að hún er heiðarleg
 5
 
 reyna + á
 
 a
 
 beita líkamanum til áreynslu
 dæmi: fjallgangan reyndi mjög á vöðvana
 reyna á sig
 
 dæmi: það er hollt að reyna hæfilega mikið á sig
 b
 
 útheimta (e-ð), strekkja (e-ð)
 dæmi: þetta óþekka barn reynir sannarlega á þolinmæðina
 dæmi: prófið reyndi mikið á hugvit nemendanna
 c
 
 láta á <þetta> reyna
 
 athuga hvort þetta verður svo
 dæmi: ég ætla að láta á það reyna hvort hún rekur mig
 láta reyna á <rétt sinn>
 
 athuga hvort rétturinn stenst
 6
 
 reyna + fyrir
 
 reyna fyrir sér <sem sölumaður>
 
 prófa að starfa sem sölumaður
 dæmi: mig langar að reyna fyrir mér í kvikmyndagerð
 7
 
 reyna + við
 
 a
 
 sýna (e-m) ástleitni
 dæmi: hann reyndi við hana á ballinu
 b
 
 prófa að gera (e-ð)
 dæmi: ég ætla að reyna við stóru krossgátuna
 reynast
 reyndur
 reynandi
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík