Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

nást so
 
framburður
 beyging
 form: miðmynd
 1
 
 vera gripinn, handsamaður
 dæmi: bankaræninginn náðist að lokum
 dæmi: þegar hann næst fer hann í fangelsi
 2
 
 vera fenginn, fást
 dæmi: loksins náðist samband við skipið
 dæmi: samkomulag hefur náðst í deilunni
 dæmi: markmiðið náðist á þremur árum
 3
 
 nást + fram
 
 <þetta> næst fram
 
 þetta fæst framgengt, þetta verður að veruleika
 dæmi: launakröfur kennara náðust ekki fram
 4
 
 nást + í
 
 það næst í <hana>
 
 það fæst samband við hana
 dæmi: ekki náðist í ráðherrann í gær
 5
 
 nást + í gegn
 
 <þetta> næst í gegn
 
 þetta kemst áleiðis, kemst í gegn
 dæmi: frumvarpið náðist ekki í gegn í þinginu
 6
 
 nást + til
 
 það næst til <hans>
 
 það fæst samband við hann
 dæmi: það náðist til bankastjórans eftir margar tilraunir
 7
 
 nást + úr
 
 <þetta> næst úr
 
 þetta fer úr, hverfur
 dæmi: þessi blettur næst ekki úr dúknum
 
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík