| _____________________ Úr málfarsbankanum:
Orðið <i>meirihluti</i> (<i>meiri hluti</i>) vísar til margra þótt það standi sjálft í eintölu. Beygingin miðast við form orðsins, þ.e. eintöluna, fremur en merkingu þess. <i>Meirihluti starfsmannanna vill breytingar</i> (ekki: „meirihluti starfsmannanna vilja breytingar“). _________________________________ |