Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

loftræsting no kvk
 
framburður
 beyging
 orðhlutar: loft-ræsting
 1
 
 streymi fersks lofts um lokað rými, t.d. byggingu
 dæmi: það er léleg loftræsting í veitingastofunni
 2
 
 búnaður til að veita fersku lofti um lokað rými, t.d. byggingu
 dæmi: loftræstingin blés köldu lofti inn í herbergið
 
_____________________
Úr málfarsbankanum:

Orðið <i>loftræsting</i> er kvenkynsnafnorð sem yfirleitt er aðeins notað í eintölu.<br>Athugið sérstaklega að eignarfallið er <i>loftræstingar</i> en ekki „loftræstingu“<br>og eignarfall með greini er <i>loftræstingarinnar</i> en ekki „loftræstingunnar“.<br><br>Einnig er til <i>loftræsing</i>.
_________________________________
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík