Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

ljúka so info
 
framburður
 beyging
 fallstjórn: þágufall
 1
 
 leggja lokahönd á (e-ð), vinna (verk) til enda
 dæmi: ég lauk uppþvottinum á fimm mínútum
 dæmi: hún hefur lokið prófi í lögfræði
 ljúka við <ritgerðina>
 
 dæmi: við lukum við að planta blómunum
 2
 
 frumlag: þágufall
 vera búinn, hætta, enda
 dæmi: skólanum lýkur í júní
 dæmi: fótboltaleiknum lauk með jafntefli
 dæmi: ráðstefnunni er lokið
 3
 
 gamalt
 ljúka upp
 
 opna (e-ð)
 dæmi: hann lauk upp herberginu
 4
 
 áður en yfir lýkur
 
 áður en allt er búið, endirinn kominn
 dæmi: meira fé mun safnast áður en yfir lýkur
 dæmi: áður en yfir lauk höfðu tíu verið handteknir
 þar til yfir lýkur
 
 þar til allt er búið
 dæmi: við ætlum að berjast þar til yfir lýkur
 ljúkast
 lokinn
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík