Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

1 líða so info
 
framburður
 beyging
 1
 
 (um tíma) þokast áfram, hafa ákveðna framvindu, vinda fram
 dæmi: tíminn líður hratt
 dæmi: árin liðu og börnin urðu fullorðin
 það er <skammt> liðið á <mánuðinn>
 
 mánuðurinn er stutt kominn
 það er <langt> um liðið
 
 það er langt síðan
 það líður að <jólum>
 
 jólin nálgast
 það líður á <árið>
 
 árinu vindur fram
 dæmi: þegar líður á sumarið fjölgar ferðamönnunum
 það líður ekki á löngu þar til <hann kemur í heimsókn>
 
 ekki er langur tími þar til ...
 dæmi: ekki leið á löngu þar til bíllinn bilaði aftur
 það líður og bíður
 
 langur tími líður
 dæmi: það leið og beið og ekkert fréttist af ferðamönnunum
 þegar fram líða stundir
 
 þegar tímanum vindur fram, þegar lengra líður, með tímanum
 dæmi: þegar fram líða stundir verður vöruúrvalið vonandi aukið
 þegar frá líður
 
 þegar lengri tími er liðinn
 dæmi: æsingur kjósenda minnkaði þegar frá leið
 2
 
 frumlag: þágufall
 vera við ákveðna líðan eða heilsu, hafa það gott eða slæmt
 dæmi: mér líður ekki vel í höfðinu
 dæmi: hvernig líður ykkur í nýja húsinu?
 dæmi: hún hafði miklar áhyggjur og leið illa
 dæmi: sjúklingnum líður betur í dag
 3
 
 hafa ákveðinn gang, vera við visst ástand
 dæmi: hvað líður byggingu nýja grunnskólans?
 hvað sem öðru líður
 
 hvernig svo sem málin standa, þrátt fyrir allt
 dæmi: hvað sem öðru líður er bókin mjög spennandi
 4
 
 frumlag: þágufall
 <mér> líður <þessi atburður> aldrei/seint úr minni
 
 ég mun alltaf muna þennan atburð
 5
 
 fara létt, svífa
 dæmi: þau liðu eftir dansgólfinu
 dæmi: reykurinn leið í gegnum loftið
 6
 
 líða + hjá
 
 <verkurinn> líður hjá
 
 verkurinn hverfur smátt og smátt
 dæmi: höfuðverkurinn leið smám saman hjá
 láta ekki <tækifærið> hjá líða
 
 sleppa ekki tækifærinu
 dæmi: við létum ekki hjá líða að koma við á hvalasafninu
 7
 
 líða + í
 
 líða í ómegin
 
 missa meðvitund, falla í yfirlið
 8
 
 líða + undir
 
 <ríkið> líður undir lok
 
 ríkið hættir að vera til
 dæmi: Rómaveldi leið undir lok á 5. öld
 9
 
 líða + út af
 
 líða út af
 
 hníga út af, lognast út af
 dæmi: hún leið út af í hægindastólnum
 10
 
 líða + yfir
 
 það líður yfir <hana>
 
 hún missir meðvitund, fellur í yfirlið
 dæmi: það leið yfir hann á læknastofunni
 líða
 líðast
 líðandi
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík