Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

liggja so info
 
framburður
 beyging
 1
 
 vera í láréttri stellingu
 dæmi: hún liggur í rúminu
 dæmi: kötturinn lá á mottunni
 dæmi: við lágum í grasinu og horfðum upp í himininn
 liggja á grúfu
 liggja veikur
 hér liggur <hann>
 
 hér er hann grafinn
 2
 
 (um flata hluti eða hluti á hliðinni) vera í flatri stöðu
 dæmi: bókin liggur opin á borðinu
 dæmi: hálsfestin lá á botni skúffunnar
 dæmi: fötin lágu á gólfinu
 3
 
 (um veg, leið) hafa staðsetningu eða stefnu, vera staðsettur
 dæmi: vegurinn lá eftir dalnum
 dæmi: gatan liggur í hálfhring
 <halda> sem leið liggur
 
 fara eftir veginum
 4
 
 liggja + að
 
 a
 
 <Danmörk> liggur að <Þýskalandi>
 
 Danmörk á landamæri að Þýskalandi
 b
 
 láta að því liggja
 
 gefa það í skyn, gefa það til kynna
 dæmi: látið var að því liggja að fjárveitingin hafi verið ólögleg
 5
 
 liggja + á
 
 a
 
 <mér> liggur á
 
 frumlag: þágufall
 ég er að flýta mér
 dæmi: honum lá ekkert á að fara heim
 <henni> liggur lífið á
 það liggur (ekki) á <þessu>
 b
 
 það liggur <vel> á <honum>
 
 hann er í góðu skapi
 c
 
 liggja á eggjum
 
 (um fugl) vera á eggjum í hreiðri
 d
 
 liggja á <peningunum>
 
 láta þá ekki frá sér, halda fast í þá
 6
 
 liggja + eftir
 
 það liggur <mikið> eftir <hana>
 
 hún á mörg verk að baki (t.d. bækur, kvæði)
 7
 
 liggja + frammi
 
 <eyðublaðið> liggur frammi
 
 eyðublaðið er aðgengilegt (á opinberum stað)
 8
 
 liggja + fyrir
 
 a
 
 liggja fyrir
 
 liggja í rúminu (vegna veikinda eða til að hvíla sig)
 b
 
 liggja fyrir dauðanum
 
 bíða fársjúkur eftir að deyja
 c
 
 það liggur fyrir að <ákveða þetta>
 
 það er úrlausnarefni að ákveða þetta, það stefnir í það
 það liggur ekkert fyrir um <þetta>
 
 það er óljóst, óákveðið
 d
 
 <þetta> á fyrir <henni> að liggja
 
 þetta mun koma fyrir hana, framtíðin ber þetta í skauti sér
 dæmi: það átti ekki fyrir honum að liggja að koma til Ameríku
 <þetta> liggur fyrir <honum>
 
 þetta kemur fyrir hann í framtíðinni, þetta verða örlög hans
 dæmi: við vissum ekki að þetta lægi fyrir okkur
 e
 
 <þetta> liggur opið fyrir <honum>
 
 hann á auðvelt með þetta, að læra þetta
 9
 
 liggja + í
 
 a
 
 liggja í <flensu>
 
 vera veikur af flensu
 b
 
 liggja í bókum
 
 gefa bóklestri mikinn tíma og áhuga
 c
 
 liggja í því
 
 neyta áfengis stöðugt
 d
 
 liggja í því
 
 fá skell, bíða ósigur, verða undir
 dæmi: þar lástu í því!
 e
 
 þannig liggur í því
 
 þannig er málið vaxið, þannig er það
 dæmi: þannig lá í því að þeir ætluðu að hittast um kvöldið
 f
 
 það liggur í augum uppi
 
 það er augljóst
 g
 
 <þetta> liggur í því
 
 þetta er fólgið í því
 dæmi: þrautin lá í því að hann átti að drepa hættulegan dreka
 h
 
 <spenna> liggur í loftinu
 
 spenna er í andrúmsloftinu
 10
 
 liggja + með
 
 liggja með <henni>
 
 hafa kynmök við hana, leggjast með henni
 11
 
 liggja + niðri
 
 <starfsemin> liggur niðri
 
 starfsemin er ekki í gangi
 dæmi: flugsamgöngur lágu niðri í óveðrinu
 11
 
 liggja + nærri
 
 það lá nærri <öngþveiti>
 
 það var komið nálægt öngþveiti, öngþveiti varð næstum
 dæmi: það lá nærri að hann æki út af
 12
 
 liggja + undir
 
 a
 
 liggja undir grun
 
 vera grunaður
 b
 
 <viðurinn> liggur undir skemmdum
 
 hann er við það að skemmast
 12
 
 liggja + til
 
 <sterk rök> liggja til <þess>
 
 sterk rök eru fyrir því
 dæmi: margar ástæður liggja til þess að salurinn er heppilegur
 13
 
 liggja + úti
 
 liggja úti
 
 búa í tjaldi
 14
 
 liggja + við
 
 a
 
 <þetta> liggur beint við
 
 þetta er augljóst, nærtækt, hentugt
 dæmi: það lá beint við að spyrja bóndann til vegar
 b
 
 <mér> liggur við <köfnun>
 
 frumlag: þágufall
 ég er alveg að kafna
 það lá við <árekstri>
 
 það varð næstum árekstur
 dæmi: það lá við að hann missti jafnvægið
 það lá við sjálft að <hann félli útbyrðis>
 
 hann féll næstum útbyrðis, minnstu munaði að ...
 c
 
 það liggja <háar sektir> við <brotinu>
 
 sá fær háa sekt sem fremur slíkt brot
 d
 
 ef / þegar mikið liggur við
 
 ef þess nauðsynlega þarf, ef aðstæður krefjast þess, ef í hart fer
 dæmi: ef mikið lá við afgreiddi eigandinn sjálfur í búðinni
 e
 
 liggja við
 
 gamalt
 búa í tjaldi
 16
 
 liggja + yfir
 
 liggja yfir <þessu>
 
 skoða þetta vandlega
 dæmi: hann lá lengi yfir heimadæmunum
  
orðasambönd:
 láta ekki sitt eftir liggja
 
 taka þátt í skyldustörfum
 það liggur í augum uppi
 
 það er augljóst
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík