Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

lenda so info
 
framburður
 beyging
 1
 
 fallstjórn: þágufall
 fljúga niður og ná landi (um flugvél)
 dæmi: flugmaðurinn lenti þyrlunni fimlega
 dæmi: við lendum eftir hálftíma
 2
 
 koma niður á (e-ð), koma (e-s staðar) niður
 dæmi: hann datt á svelli og lenti á rassinum
 dæmi: flaskan fór um koll og lenti á gólfinu
 3
 
 lenda + á
 
 <þetta> lendir á <mér>
 
 þetta fellur í minn hlut, þetta verður mitt hlutverk
 dæmi: það lenti á honum að ryksuga
 dæmi: skýrslugerðin lendir oftast á ritara skólans
 4
 
 lenda + í
 
 lenda í <slysi>
 
 verða fyrir slysi, hljóta slys
 dæmi: bílar lenda stundum í árekstri
 dæmi: á endanum lenti hann í fangelsi
 dæmi: hringdu bara í mig ef þú lendir í vandræðum
 dæmi: skipverjarnir lentu í lífsháska
 lenda í ævintýrum
 
 komast í ævintýri
 5
 
 lenda + saman
 
 frumlag: þágufall
 <þeim> lendir saman
 
 þau fara í deilur, rifrildi
 dæmi: nágrönnunum hefur lent saman vegna hundsins
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík