Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

afleiðing no kvk
 
framburður
 beyging
 orðhlutar: af-leiðing
 það sem hlýst eða leiðir af e-u
 dæmi: afleiðingarnar af stríðinu voru hungursneyð og fólksflótti
 dæmi: of hraður akstur getur haft alvarlegar afleiðingar
 orsök og afleiðing
 taka afleiðingunum
 
 dæmi: þeir sem haga sér heimskulega verða að taka afleiðingunum
 
_____________________
Úr málfarsbankanum:

Athugið sérstaklega að eignarfall eintölu orðsins <i>afleiðing</i> er <i>afleiðingar</i> en ekki „afleiðingu“ og eignarfall eintölu með greini er <i>afleiðingarinnar</i> en ekki „afleiðingunnar“.
_________________________________
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík