Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

kenna so info
 
framburður
 beyging
 1
 
 fallstjórn: (þágufall +) þolfall
 fræða (t.d. nemanda) (um e-ð)
 dæmi: hún kenndi mér frönsku
 dæmi: hún kennir stærðfræði við háskólann
 dæmi: hún kenndi drengnum að lesa
 dæmi: tónsmíðar eru kenndar við listaháskólann
 2
 
 gamalt
 fallstjórn: þolfall
 þekkja (e-ð) aftur
 dæmi: ég kenndi þennan málróm
 3
 
 fallstjórn: eignarfall
 finna fyrir (tilfinningu)
 dæmi: hún kenndi mikils sársauka í öxlinni
 kenna í brjósti um <hana>
 
 vorkenna henni
 kenna sér einskis meins
 
 vera ómeiddur
 dæmi: við kenndum okkur einskis meins eftir áreksturinn
 það kennir <sorgar> í <rödd hennar>
 
 það er sorgartónn í röddinni
 dæmi: það kenndi mikils ótta í fasi hans
 4
 
 kenna <honum> um <þetta>
 
 fallstjórn: þágufall
 setja sökina á hann, skella skuldinni á hann
 dæmi: ég kenni ríkisstjórninni um ástandið í efnahagslífinu
 <þetta> er <honum> að kenna
 
 hann á sökina að þessu
 dæmi: það er þér að kenna að við komum of seint
 dæmi: þetta er allt mér að kenna
 geta sjálfum sér um kennt
 
 sökin er öll hjá manni sjálfum
 dæmi: hún gat sjálfri sér um kennt að hafa misst af tækifærinu
 5
 
 kenna <honum> <barnið>
 
 fallstjórn: þágufall + þolfall
 segja að hann eigi barnið
 6
 
 kenna + til
 
 gamaldags
 finna til sársauka
 dæmi: ég kenni til í hnénu
 dæmi: kennir þú einhversstaðar til?
 7
 
 kenna + við
 
 kenna <sig> við <sveitina sína>
 
 nefna sig eftir sveitinni sinni
 dæmi: kirkjan er kennd við Maríu mey
  
orðasambönd:
 <hér> kennir margra grasa
 
 hér er margt fjölbreytilegt
 dæmi: það kennir margra grasa á byggðasafninu
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík