Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

3 fs/ao
 
framburður
 fallstjórn: þágufall
 1
 
 um stefnu eða hreyfingu til e-s staðar/í áttina til e-s
 dæmi: lögreglumaðurinn gekk að bílnum
 dæmi: lóðin nær að girðingunni
 2
 
 um dvöl/búsetu, með (vissum) bæjarnöfnum
 dæmi: biskupssetrið að Hólum
 3
 
 með vísun til skilyrða eða forsendu e-s
 dæmi: áætlunin stenst að öllu óbreyttu
 dæmi: næsti fundur verður að viku liðinni
 4
 
 með tilliti til (e-s)
 dæmi: bíllinn er svartur að lit
 dæmi: hún er þýsk að ætt
 5
 
 utan frá
 dæmi: gestirnir komu víða að
 dæmi: kemur þú langt að? - ég kem alla leið frá Svíþjóð
 6
 
 hvað er að þér!
 hvað er að?
 það er eitthvað að
 það er ekkert að
 það er <eitthvað> að <honum>
 það er <eitthvað> að <bílnum>
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík