Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

hvað fn
 
framburður
 form: hvorugkyn
 spurnarfornafn / óákveðið fornafn
 1
 
 sérstætt
 (í upphafi beinnar spurningar) hvaða hlutur, hvaða fyrirbæri o.s.frv. (þ.e. í opinni spurningu um hluti, fyrirbæri eða athafnir almennt)
 dæmi: hvað er að frétta?
 dæmi: hvað gerði ég vitlaust?
 dæmi: hverju höfum við gleymt?
 dæmi: hvað skal segja?
 2
 
 sérstætt
 (sem tengiorð í upphafi spurnaraukasetningar) hvaða hlutur, fyrirbæri, atburður o.s.frv.
 dæmi: ég veit ekkert hvað varð um þessa pappíra
 dæmi: börnin skildu ekki almennilega hvað það var sem þau heyrðu
 dæmi: hann mundi vel hvers hann saknaði mest þegar hann var í burtu
 3
 
 með vísun til lýsingarorðs eða atviksorðs: hversu
 dæmi: hvað er dóttir þín gömul?
 dæmi: þeir vissu ekki hvað þeir yrðu lengi í burtu
 4
 
 í halaspurningum; til að leita eftir samþykki viðmælanda eða tryggja að hann fylgist með
 dæmi: ertu ekki að verða búin að borða, eða hvað?
 dæmi: eigum við ekki að skella okkur í bíó í kvöld, eða hvað?
 4
 
 sérstætt
 sérhvað (um hluti, fyrirbæri, athafnir o.s.frv. almennt)
 dæmi: krakkarnir gera bara hvað sem þeim sýnist
 dæmi: maður getur átt von á hverju sem er
 hvað <best>
 
 (með efsta stigi atviksorðs) einna <best>
 dæmi: sú borg sem heillar mig hvað mest er Berlín
 dæmi: gjaldkerinn er sá starfsmaður sem hefur unnið hvað lengst hjá fyrirtækinu
 hvað eina, hvaðeina
 
 hvað sem er, allt
 dæmi: senda má fyrirspurnir um hvað eina sem tengist ljósmyndun
 dæmi: á markaðnum fæst matur, föt, búsáhöld, skartgripir og allt hvað eina
 hvað þá
 
 (á eftir neitun) enn síður
 dæmi: hann getur ekki einu sinni gengið núna, hvað þá hlaupið
 dæmi: ég hef varla tíma til þess að skjótast í sturtu, hvað þá fara í sund
 hvað <þetta> snertir/varðar
 
 að því sem snertir eða varðar <þetta>
 dæmi: hvað sjálfan mig snertir gengur allt vel en bróðir minn missti vinnuna í haust
 dæmi: málinu er lokið hvað þetta varðar
 hver
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík