Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

hérna ao
 
framburður
 1
 
 einmitt á þessum stað, hér
 dæmi: býrðu hérna?
 dæmi: hvar er þér illt? - hérna í hnénu
 2
 
 hingað
 dæmi: komdu hérna, ég ætla að segja þér dálítið
 3
 
 til nánari ábendingar með ábendingarfornafni
 dæmi: ætlarðu að kaupa buxurnar - nei, ég ætla að fá þessar hérna
 dæmi: þessi stóll er fínn, en sjáðu þennan hérna!
 4
 
 táknar hik í tali
 dæmi: hérna - mig langar að biðja um frí á morgun
 dæmi: ég verð að segja, hérna, að ég skil þetta ekki
 5
 
 sagt þegar hlutur er réttur að einhverjum
 dæmi: hérna, taktu peningana
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík