e-ð sem er samtengt, nokkrir hlutar sem eiga saman
dæmi: þetta var gert með hagsmuni heildarinnar í huga
mynda eina heild
gömlu húsin við götuna mynda eina heild
<þetta eru sanngjörn úrslit> þegar á heildina er litið
... þegar allt er tekið með í reikninginn
_____________________ Úr málfarsbankanum:
Nafnorðið <i>heild</i> finnst í fjölmörgum eignarfallssamsetningum sem ávallt eru ritaðar í einu orði: <i>heildarfjöldi</i>, <i>heildargróði</i>, <i>heildarlaun</i>, <i>heildarmagn</i>, <i>heildarútkoma</i>, <i>heildarverðmæti</i> o.s.frv. _________________________________